Bíó og sjónvarp

Búið að nefna næstu Star Wars mynd

Samúel Karl Ólason skrifar
Búið er að gefa næstu Star Wars myndinni nafn. Star Wars: The Last Jedi. Myndin er sú áttunda í sögunni um Skywalker fjölskylduna. Myndin mun byrja á þeim tíma sem sú síðasta endaði, þar sem Rey hafði loksins fundið Luke Skywalker.

Rian Johnson skrifaði handritið og leikstýrir myndinni en hann er hvað þekktastur fyrir að hafa leikstýrt myndinni Looper.

Nafn myndarinnar var kynnt á Facebook síðu Star Wars, rétt í þessu. Áhorfendur þurfa þó að bíða um nokkuð skeið þar sem myndin verður ekki sýnd í kvikmyndahúsum fyrr en í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×