Bíó og sjónvarp

Búið að frumsýna Hrúta á Cannes

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson, og Theodór Júlíusson á rauða dreglinum í Cannes.
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson, og Theodór Júlíusson á rauða dreglinum í Cannes. visir/getty
Verið er að heimsfrumsýna Hrúta, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, á Cannes-kvikmyndahátíðinni akkúrat núna. Myndin var valin til þátttöku í Un Certain Regard flokki þessarar virtustu hátíðar heimsins en þetta er fyrsta íslenska kvikmyndin sem nær því í yfir áratug.

Í tilefni af því var Grímur leikstjóri í viðtali við vefritið Variety. „Báðir foreldrar mínir ólust upp í sveit og ég var sendur þangað til að vinna á sumrin þar til að ég varð sautján ára,“ segir Grímur. „Bændur eru flestir afar tengdir dýrunum sínum. Íslenska kindin er rótgróin í menningu okkar og hefur í gegnum tíðina átt stóran þátt í að Íslendingar komust af.“

Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson leika bræðurna Kidda og Gumma sem hafa ekki talast við í áratugi þrátt fyrir að búa hlið við hlið. Þeir deila ást á sauðkindinni og taka höndum saman þegar riða kemur upp í dalnum þar sem þeir búa.

„Theodór var alltaf valkostur númer eitt til að leika Kidda en í upphafi hafði ég hugsað mér annan sem Gumma. En þegar ég sá Sigga á Edduverðlaunahátíðinni skeggjaðan og með sítt hár sá ég hann fyrir mér sem bónda. Þeir eru ólíkir en með skeggin er auðvelt að halda að þeir séu bræður.“

Stikla úr Hrútum fylgir hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Kindurnar ættu að fá Edduna fyrir leik sinn

Tökum á kvikmyndinni Hrútum eftir Grím Hákonarson lauk síðastliðna helgi. Snjóleysi setti strik í reikninginn en veðurguðirnir bættu það upp á ýmsa vegu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×