Handbolti

Búið að draga í átta liða úrslit í bikarkeppni HSÍ

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mosfellingar fara út á Nes.
Mosfellingar fara út á Nes. vísir/stefán
Nú í hádeginu var dregið í átta liða úrslit í bikarkeppni HSÍ, Coca Cola-bikarnum, og er nokkuð um áhugaverða leiki.

Topplið Olís-deildar karla, Afturelding, fer út á Nes og Íslandsmeistarar Hauka taka á móti Selfyssingum sem hafa komið skemmtilega á óvart.

Topplið Olís-deildar kvenna, Fram, þarf að sækja botnlið deildarinnar, Fylki heim og svo verður mikill slagur er ÍBV sækir Stjörnuna heim.

8-liða úrslit karla:

Haukar - Selfoss

Fram - FH

Grótta - Afturelding

Valur - Stjarnan

8-liða úrslit kvenna:

Stjarnan - ÍBV

Fylkir - Fram

Afturelding - Haukar

Grótta - Selfoss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×