Fótbolti

Buffon gaf stuðningsmanni stuttbuxurnar sínar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stuðningsmaðurinn heppni með stuttbuxurnar hans Buffons.
Stuðningsmaðurinn heppni með stuttbuxurnar hans Buffons. vísir/getty
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, þakkaði fyrir sig á óvenjulegan hátt eftir markalausa jafnteflið við Barcelona á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í gær.

Það er algengt að leikmenn kasti treyju sinni upp í stúku eftir leiki. Buffon gaf hins vegar stuðningsmanni Juventus stuttbuxurnar sem hann klæddist í leiknum.

Stuðningsmaðurinn sem var svo heppinn að fá stuttbuxurnar hans Buffons var að vonum kátur eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Markvörðurinn goðsagnakenndi skokkaði svo af velli á nærbuxunum.

Buffon átti góðan leik gegn Barcelona og varði nokkrum sinnum vel. Juventus er í 2. sæti D-riðils með átta stig, einu stigi á undan Sporting sem er í 3. sætinu.

Juventus þarf því að vinna Olympiakos í lokaumferð riðlakeppninnar til að komast áfram í 16-liða úrslit.

Buffon þakkaði vel fyrir sig ...vísir/getty
... og skokkaði svo af velli á nærbuxunum.vísir/getty

Tengdar fréttir

Markalaust í Tórínó

Barcelona vann fyrri leik liðanna með þremur mörkum gegn engu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×