Fótbolti

Buffon ætlar að spila til fertugs

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianluigi Buffon.
Gianluigi Buffon. Vísir/Getty
Juventus hefur boðað til blaðamannafundar í dag og ítalskir fjölmiðlar hafa komist að því að það sé félagið að fara að tilkynna um nýja samninga hjá þeim Gianluigi Buffon og Andrea Barzagli.

Gianluigi Buffon er 38 ára gamall markmaður og Andrea Barzagli er 35 ára gamall miðvörður en þeir eru lykilmenn í hinni frábæru vörn liðsins.

Juventus-liðið hefur aðeins fengið á sig 20 mörk í 37 leikjum eða tólf mörkum minna en næsta lið. Liðið hefur níu stiga forskot á liðið í öðru sæti þegar aðeins ein umferð er eftir.

Það er talið nánast öruggt að þeir séu báðir að fara gera nýjan tveggja ára samning við Juventus eða til ársins 2018. Það myndi þýða að Buffon spili til fertugs.

Gianluigi Buffon er fæddur 28. janúar 1978 og hélt því upp á 38 ára afmælið í vetur en hann er aðalmarkvörður hjá bæði besta félagsliði Ítala sem og ítalska landsliðinu. Hann er nú að klára sitt fimmtánda tímabil með félaginu og verður því búinn með sautján þegar nýi samningurinn rennur út.

Buffon varð ítalskur meistari í sjöunda sinn á þessu tímabili en Juve hefur nú unnið titilinn fimm ár í röð. Gianluigi Buffon hefur aðeins fengið á sig 17 mörk í þeim 35 leikjum sem hann hefur spila og haldið hreinu í 21 leik í ítölsku deildinni á tímabilinu.

Buffon hefur ekki sýnt nein veikleikamerki á leiktíðinni og hefur aðeins misst af tveimur leikjum Juventus í deild og Meistaradeild. Hann setti nýtt met í ítölsku deildinni í vetur þegar hann hélt markinu hreinu í 974 mínútur samfellt og bætti með því met Sebastiano Rossi. 

Nú er talið líklegast að Gianluigi Buffon endi ferill sinn með ítalska landsliðinu á HM í Rússlandi 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×