Heilsa

Búðu til þitt eigið þurrsjampó

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Þurrsjampó þurrkar umframfitu í hárinu sem gerir það að verkum að hárið virkar nýþvegið og fær aukna fyllingu. Þau eru tilvalin til notkunar þegar ekki gefst tími til þess að fara í sturtu á morgnanna og fyrir þá sem eru að reyna að fara betur með hárið og þvo það sjaldnar. Þurrsjampó geta þó verið kostnaðarsöm og mörg þeirra innihalda efni sem geta verið skaðleg heilsunni.

Hér koma uppskriftir af þremur mismunandi útgáfum af þurrsjampói sem hægt er að búa til sjálfur:

Þurrsjampó fyrir ljóst hár

1/4 bolli örvarrótarduft (fæst í flestum heilsubúðum)

5 dropar af ilmkjarnaolíu

Leiðbeiningar: Blandið örvarrótarduftinu og ilmkjarnolíunni saman með skeið og setjið í tómt ílát með loki. Gott er að nota gamlan förðunarbursta til þess að setja þurrsjampóið í hárið en það er líka hægt að hella smávegis í lófann og nudda vel í hársvörðinn. Greiðið svo duftið úr hárinu.

Þurrsjampó fyrir dökkt hár

2 matskeiðar hrákakóduft

2 matskeiðar örvarrótarduft

5 dropar af ilmkjarnaolíu

Leiðbeiningar: Blandið kakóinu, örvarrótarrduftinu og ilmkjarnaolíunni vel saman og setjið í tóma krukku með loki. Gott er að nota gamlan förðunarbursta til þess að setja þurrsjapóið í hárið en það er líka hægt að hella smávegis í lófann og nudda vel í hársvörðinn. Greiðið svo duftið úr hárinu.

Þurrsjampó úði fyrir ljóst og dökkt hár

1 bolli heitt vatn

1/4 bolli örvarrótarduft

1/4 bolli nornaheslivatn (fæst í jurtaapótekum)

5 dropar af uppáhalds ilmkjarnaolíunni

Leiðbeiningar: Blandið hráefnunum saman í lítinn úðabrúsa og hristið vel. Hristið brúsann alltaf fyrir notkun, úðið í rótina á hárinu og þar sem það er fitugt. Leyfið því að þorna og greiðið eins og venjulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×