Heilsa

Búðu til þinn eigin ilm

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Hefðbundin ilmvötn eru full af kemískum efnum sem eru talin vera skaðleg heilsunni. Fyrir þá sem vilja forðast öll aukaefni í snyrtivörum er sniðugt að búa þær til sjálfur.

Þessi dásamlegi ilmur er án allra skaðlegra efna og hægt að skipta út ilmkjarnaolíum til þess að fá sinn persónulega ilm.

Hráefni sem þarf í ilminn:

2 tsk býflugnavax

2 tsk möndluolía eða jojoba olía

12 dropar sítrónu ilmkjarnaolía

12 dropar sæt appelsínu ilmkjarnaolía

12 dropar bergamot ilmkjarnaolía

12 dropar lofnarblóma ilmkjarnaolía

Ílát fyrir ilminn, til dæmis lítið box undan varasalva.

Leiðbeiningar:

1.Blandið ilmkjarnaolíunum saman í skál. Hægt er að nota mismunandi hlutföll af ilmkjarnaolíunum eða skipta þeim út fyrir aðrar sem henta hverjum og einum.

2. Setjið 2 teskeiðar af möndluolíunni í aðra skál og verið með það tilbúið áður en býflugnavaxið er brætt

3. Bræðið 2 teskeiðar af býflugnavaxi í potti á meðalhita.

4. Þegar býflugnavaxið er brætt, hellið þá möndluolíunni í pottinn og hrærið saman við býflugnavaxið. Takið pottinn af hellunni og blandið ilmkjarnaolíunum strax saman við. Hærið í smá stund þangað til allt hefur blandast vel saman.

5. Hellið blöndunni um leið og búið er að hræra henni saman í tómt ílát sem er ætlað fyrir ilminn. Setjið lokið á og látið bíða í 10 mínútur. Þá er þessi dásamlegi heimatilbúni ilmur tilbúinn.

Njótið!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×