Heilsa

Búðu til þinn eigin farða

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
visir/getty
Fyrir þá sem vilja náttúrulegan farða án allra óæskilegra aukaefna er þessi uppskrift alveg málið.

5 msk. örvarrótarduft (fæst í flestum heilsubúðum)

1 tsk. kakóduft (eða eftir þörfum)

1 tsk. kanill

Til þess að búa til laust púður er gott að byrja með örvarrótarduftið og bæta kakóinu og kanilnum rólega saman við þangað til réttur tónn sem passar húðlitnum hefur náðst. Geymið í lítilli krukku eða tómum umbúðum undan öðru púðri og berið á með bursta. 



Til þess að fá fast púður er hægt að blanda nokkrum dropum af ilmkjarnaolíu eða vodka saman við púðrið og pressa niður í tóma púðurdós.

Einnig er hægt að búa til sólarpúður úr sömu hráefnum en þá er hlutfallið af kakóinu og kanilnum örlítið hærra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×