Fótbolti

Buðu mér þrælasamning

Stephen Keshi.
Stephen Keshi. vísir/getty
Stephen Keshi er ekki ánægður með samninginn sem nígeríska knattspyrnusambandið bauð honum.

Ekki eru reyndar allir á því að Keshi eigi að fá að halda áfram með landsliðið þar sem honum tókst ekki að koma liðinu á Afríkukeppnina í janúar.

Keshi beið lengi eftir nýju samningstilboði og það er loks komið.

„Miðað við þær klásúlur sem ég hef séð þá er eiginlega ekki hægt að lýsa þessum samningi öðruvísi en sem þrælasamningi," sagði Keshi.

Hann var þar ekki að tala um launin, sem eru þau sömu og í gamla samningnum, heldur um önnur ákvæði samningsins sem gera hann ábyrgan fyrir hinu og þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×