Erlent

Búðareigendum skipað að hylja andlit gínanna

Atli Ísleifsson skrifar
ISIS-liðar hafa fyrirskipað að andlit gínanna verði hulin til að sjaríalögum sé framfylgt.
ISIS-liðar hafa fyrirskipað að andlit gínanna verði hulin til að sjaríalögum sé framfylgt. Vísir/AP
Uppreisnarmenn skæruliðahreyfingarinnar ISIS hafa fyrirskipað írökskum verslunarmönnum í borginni Mosul að hylja andlit allra gína í verslunum sínum.

Vígasveitir þessara herskáu súnní-múslima lýstu nýlega yfir stofnun kalífadæmis í hluta Sýrlands og Íraks.

AP fréttastofan segir að búðareigendum í Mosul hafi verið skipað að hylja andlit bæði karlkyns og kvenkyns gína, í samræmi við túlkun ISIS-liða á sjaríalögum sem banna styttur eða önnur verk sem sýna lögun manneskju.

Vísir/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×