Innlent

Búast við miklu vatnsveðri næstu daga en léttir til á föstudag

Birgir Olgeirsson skrifar
Búist er við mikilli úrkomu næstu daga.
Búist er við mikilli úrkomu næstu daga. Vísir/Pjetur
Búist er við miklu vatnsveðri á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun, miðvikudag og fyrri hluta fimmtudags. Veðurstofa Íslands hefur bent fólki á að ganga frá niðurföllum og tryggja að vatn komist rétta leið að þeim.

Er viðbúið að flóðahætta myndist, til dæmis í Hvíta í Árnessýslu og víðar.

Á föstudag má hins vegar eiga von á því að það létti víða til og verði bjart veður fram á laugardag. Veðurstofan býst hins vegar við að það muni kólna heldur í veðri.

Horfur næsta sólarhringinn:

Suðlæg átt, 3-10 m/s. Skýjað og dálítil væta á vestanverðu landinu en léttskýjað eystra. Gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu í fyrramálið, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 5 til 12 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Suðaustan 13-20 m/s og talsverð eða mikil rigning en suðaustan 5-13 og þurrt á norður- og norðausturlandi. Hiti 8 til 14 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á fimmtudag:

Allhvöss eða hvöss suðaustanátt. Rigning sunnan- og suðaustanlands en minnkandi úrkoma vestantil. Hægari suðaustanátt og bjartviði norðan- og norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á föstudag:

Fremur hæg suðaustlæg átt og léttir víða til, en skýjað og dálítil rigning suðaustanlands. Hiti 6 til 12 stig að deginum.

Á laugardag:

Hæg breytileg átt og bjart með köflum, heldur kólnandi veður.

Á sunnudag:

Heldur vaxandi austlæg átt og úrkoma suðaustan- og austanlands. Skýjað og úrkoma með köflum en lengst af þurrt norðan jökla. Hiti 3 til 8 stig.

Á mánudag:

Útlit fyrir austanátt og vætu. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×