Innlent

Búast við mikilli umferð um kirkjugarða

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Bílaumferð inn í Fossvogskirkjugarð er takmörkuð á milli klukkan 9 til 15 og er aðeins heimil þeim sem framvísa svokölluðu P-merki. Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Klettaskóla, Suðurhlíð og Vesturhlíð. Suðurhlíð verður opin inn á Kringlumýrarbraut í gegnum planið hjá N1 í Fossvogi frá og með morgundeginum. Sú leið er hentug fyrir þá sem eru að fara til Hafnafjarðar og eða/Kópavogs. Ökumenn sem nýta sér þá leið eru beðnir um að sýna aðgát gagnvart gangandi vegfarendum.

Þá verður aðkoma að Gufuneskirkjugarði eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um eins konar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðanmegin og inn á Borgaveg. Ökumenn eru beðnir um að aka Borgaveg í vestur og þaðan um Strandveg. Með þessu móti minnkar álagið á Víkurveg og Hallsveg og greiðir fyrir umferð þeirra sem eru að koma í kirkjugarðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×