Innlent

Búast má við töfum vegna malbikunar

Samúel Karl Ólason skrifar
Ýmsar framkvæmdir eiga sér stað á næstunni.
Ýmsar framkvæmdir eiga sér stað á næstunni. Vísir/Stefán
Unnið verður að við malbikun víða á og við höfuðborgarsvæðið í dag og búast má við umferðartöfum á meðan á vinnunni stendur. Vegfarendur eru beðnir um að virða vinnusvæðamerkingar og sýna aðgát á vinnusvæðum.

Frá klukkan 9:00 til 12:00 verður unnið við malbikun frá Vífilsstaðarvegi, Garðartorgi að Hagkaupum. Þá verður unnið frá klukkan 12:00 til 19:00 við malbikun á Reykjavíkurvegi. Frá gatnamótum í Engidal að gatnamótum við Flatahraun/Hraunbrún.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að einnig verði unnið við malbikun á Hringvegi 1 frá klukkan 8:00 og fram eftir degi. Nánar tiltekið á Hafnarmelum við Hafnarfjall. Þar að auki verður einnig unnið að malbikun á Hringvegi 1 á Kjalarnesi. Sú vinna byrjaði einnig klukkan 8:00 og mun standa til 21:00. Nokkur truflun verður á þessum vegkafla á meðan á framkvæmdum stendur.

Næstu tvær vikur verður unnið við breikkun og lagfæringar á Álftanesvegi um Engidal milli Hafnarfjarðarvegar og Prýðihverfis. Meðan á þessari framkvæmd stendur má búast við nokkurri röskun á umferð um svæðið. Áætlað er að verkinu verði lokið að fullu 14. september nk. Verði þörf á að koma upp tímabundnum hjáleiðum vegna einhverra þátta framkvæmdarinnar verður það auglýst sérstaklega.

Þá er unnið að því að setja niður ræsi í gegnum hringveginn, efst í Kömbum á Hellisheiði. Umferð verður beint um hjáleið og verður hraði tekinn niður í 50 km/klst á þessu svæði. Áætlað er að verkinu ljúki í byrjun september.

Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember.

Unnið er að nýju hringtorgi á Reykjanesbraut við Fitjar verður þrengt að umferð á leið til Reykjavíkur á um 400 m kafla við Stekk.  Til að byrja með verður umferðarhraði óbreyttur meðfram vinnusvæðinu,  70 km/klst.  Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×