Innlent

Búast má við stormi við suðurströndina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á Norðurlandi er víða hált og sumsstaðar éljar.
Á Norðurlandi er víða hált og sumsstaðar éljar. vísir/hag
Búast má við austan hvassviðri eða stormi við suðurströndina í kvöld og nótt. Vindhviður geta náð allt að 30-35 metrum á sekúndu. Einnig má búast við mikilli úrkomu SA lands.

Á Suðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir, þó eru hálkublettir á örfáum vegum.

Vegir eru einnig mikið auðir við Faxaflóa en hálka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði. Hálkublettir eru á Bröttubrekku.

Hálka er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum og eins á köflum á láglendi. Flughálka er á Klettshálsi.

Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Víða á Austurlandi er hálka eða hálkublettir. Greiðfært er frá Eskifirði suður um. Á Suðausturlandi er hálka á kafla vestan við Kirkjubæjarklaustur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×