Innlent

Búast má við gasmengun til norðvesturs af gosstöðvunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/jarðvísendastofnun Háskóla Íslands.
Í dag er blæs hvass vindur úr suðaustri. Búast má við gasmengun til norðvesturs af gosstöðvunum á svæði sem afmarkast af Tröllaskaga í vestri og Tjörnesi í austri.

Á morgun er spáð suðlægum vindi. Gasmengunin verður því líklega mest á svæði frá Tjörnesi til Bakkaflóa en þetta kom fram á fundi vísindamannaráðs í morgun.

Nýja hraunið á Flæðunum, í Holuhrauni, var orðið 44 ferkílómetrar á laugardag og fer enn stækkandi. Ekkert dregur úr gosinu. Örlítið hefur dregið úr hraða sigsins í öskju Bárðarbungu og er það nú um 40 sentímetrar á dag.

Skjálftavirkni í Bárðarbungu er svipuð og síðustu daga. Sex skjálftar stærri en 3,0 hafa mælst frá hádegi í gær. Sá stærsti 5,2 var kl 12:34 í gær.

Smærri skjálftar mælast enn við norðurhluta berggangsins og við gosstöðvarnar.

Almannavarnir vilja benda fólki á að ef það finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum, auka kyndingu og slökkva á loftræstingu.

Gott er að lofta vel út þegar loftgæði eru góð. Vísindamannaráð almannavarna fundar aftur á morgun.

mynd/veðurstofa íslands
mynd/veðurstofa íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×