Innlent

Búa sig undir 55% fjölgun íbúa

Svavar Hávarðsson skrifar
Alls fara 96 prósent allra ferðamanna sem koma til Íslands í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Alls fara 96 prósent allra ferðamanna sem koma til Íslands í gegnum Keflavíkurflugvöll. vísir/vilhelm
Ef spár Isavia um fjölgun farþega og nauðsynlega uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli ganga eftir mun það hafa mikil áhrif á öll sveitarfélögin á Suðurnesjum. Sem viðbragð við spánni hefur á vettvangi Hekl­unnar – Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja verið lagt til að unnin verði nákvæm innviðagreining á svæðinu svo sveitarfélögin geti unnið stefnumörkun um atvinnu- og samfélagsuppbyggingu. Talið er líklegt að íbúar á Suðurnesjum verði tæplega 35.000 árið 2030, hið minnsta, og hafi þá gott sem náð íbúafjölda Norðausturlands – annars þéttbýlasta landsvæðisins hérlendis.

Berglind Kristinsdóttir
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS), segir þessi atriði hafa verið rædd á stjórnarfundi Heklunnar nýlega.

Að sögn Berglindar verður leitast við að draga fram upplýsingar um fjölda lóða, umhverfis- og orkumál, þjónustu á svæðinu, m.a. opinbera þjónustu og fleira. Nauðsynlegt sé að greina vinnumarkaðinn meðal annars með tilliti til aldurs og kyns sem og stærðar vinnusóknar­svæðisins.

„Ef spáin rætist er ljóst að þörf er á uppbyggingu á leik- og grunnskólum. Fjölga þarf nemendaígildum í framhaldsskólum á Suðurnesjum og auka þarf verulega fjárframlög til heilbrigðisumdæmisins,“ segir Berglind og vísar til fréttar Víkurfrétta þar sem segir að komum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafi fjölgað um 30 prósent á þessu ári, án þess að nokkurt fjármagn hafi fylgt með, auk þess sem met hefur verið í sjúkraflutningum. „Það er því ljóst að allir aðilar, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða ríkisvald, verða að koma að þessu og vinna þetta verkefni þétt saman svo útkoman verði sem best fyrir alla hlutaðeigandi aðila,“ segir Berglind.

Á fyrrnefndum aðalfundi SSS fjallaði Karl Friðriksson, stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands, um hugsanlega búsetuþróun á Íslandi til ársins 2030 – og þá með tilliti til fjölgunar ferðamanna. Um er að ræða niðurstöður rannsóknar sem tengist gerð byggðaáætlunar fyrir árin 2017 til 2023 og var birt áður en spá Isavia lá fyrir. Samkvæmt henni fjölgar íbúum á Suðurnesjum úr 22.500 í 35.000 á fjórt­án árum. 

Til samanburðar verður annað þéttbýlasta svæði landsins – Norðausturland – þá byggt svipuðum fjölda íbúa, en þeir eru í dag 29.400.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×