Fótbolti

Brøndby spyrst fyrir um Hólmbert

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hólmbert í bikarleik gegn Gróttu á síðasta tímabili.
Hólmbert í bikarleik gegn Gróttu á síðasta tímabili. Vísir/Daníel
Brøndby er í viðræðum við Celtic um að fá framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson á láni frá skosku meisturunum samkvæmt heimildum danska miðilsins BT.

Brøndby er við það að ganga frá sölunni á danska framherjanum Simon Makienok til Palermo í ítölsku úrvalsdeildinni en hann hefur leikið með Brøndby undanfarin tvö ár.

Samkvæmt heimildum BT vilja forráðamenn Brøndby fá leikmann inn sem getur tekið við keflinu af Simon sem er hávaxinn framherji líkt og Hólmbert.

Hólmbert hefur ekki enn fengið tækifæri í byrjunarliði Celtic síðan hann gekk til liðs við skosku meistarana í byrjun árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×