Viðskipti innlent

Brynjólfur hættir hjá Framtakssjóðnum

Samúel Karl Ólason skrifar
Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands mun láta af störfum eftir aðalfund sjóðsins þann 27. mars næstkomandi. Brynjólfur óskaði eftir því við stjórnina sem hefur fallist á beiðni hans.

Brynjólfur segir í tilkynningu á vef FSÍ að ákvörðunin eigi sér nokkurn aðdraganda. „Ég á að baki langa starfsævi í atvinnulífinu og hef tekist á við mörg spennandi og krefjandi verkefni.  Fyrir það er ég þakklátur. Tíminn hjá Framtakssjóðnum hefur verið sérlega ánægjulegur og árangursríkur og ég hef átt gott samstarf við þá sem tengjast starfseminni . Ég á stóra og góða fjölskyldu og mörg áhugamál og því varð sú löngun að vera herra eigin tíma sífellt áleitnari.“

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, segir í tilkynningunni að eftirsjá sé í Brynjólfi. „Ráðning Brynjólfs var farsæl fyrir Framtakssjóðinn. Stöðugleiki og góður árangur hefur einkennt tíma hans hjá sjóðnum. Stjórnin þakkar Brynjólfi vel unnin störf og  óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Enda þótt Brynjólfur láti nú af föstu starfi vona ég að íslenskt atvinnulíf fái í einhverju notið krafta hans og reynslu í framtíðinni.“

„Brynjólfur kom til starfa í byrjun árs 2012 og hefur leitt FSÍ í gegnum kaup og sölu fyrirtækja á tímabilinu, og hefur starfsemi sjóðsins skilað eigendum góðri arðsemi og er útlit fyrir að árangur verði áfram góður,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×