Körfubolti

Brynjar Þór: Gott að taka pabba gamla með á æfingarnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR, hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins, og öðrum fremur séð til þess að KR-liðið er með fullt hús á toppnum þrátt fyrir að vera án manna eins og Jóns Arnórs Stefánssonar og Pavels Ermolinskij.

Brynjar Þór Björnsson hefur skorað 30 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjum KR-liðsins og er næststigahæsti leikmaður Domino´s deildarinnar.

Kjartan Atli Kjartansson ræddi við Brynjar í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fór yfir samanburð á frammistöðu hans í fyrstu tveimur leikjunum í vetur miðað við fyrstu tvo leikina í fyrra.

„Þetta hefur alltaf verið þarna. Ég hef verið í góðu og breiðu liði hjá KR og því hefur einstaklingurinn ekki fengið að njóta sín. Við höfum verið mjög samheldinn hópur og margir að leggja sitt að mörkum,“ sagði Brynjar Þór Björnsson.

„Það hafa verið margir að skora sem hefur verið okkar helsta vopn. Nú hafa þrír stórir partar af liðinu ekki verið með í fyrstu leikjunum og þá þurfa aðrir að stíga upp,“ sagði Brynjar.

Brynjar hefur verið að halda körfuboltanámskeið í ár fyrir fullorðna sem hafa ekki fengið grunnþjálfun í íþróttinni. Þar kennir hann áhugasömum að skjóta og helstu leyndarmálin á bak við það að skora mikið. Getur verið að námskeiðið sé að hjálpa honum sjálfum?

„Já að einhverju leiti. Ég er í rauninni að selja sjálfan mig,“ sagði Brynjar brosandi og bætti við:

"Ég vil að einstaklingurinn fái að njóta sín. Ég tel að bumbuboltinn sé ekki góður ef leikmenn ætla að reyna að bæta sig. Þú tekur kannski fimm skot á klukkutíma. Þegar þú kemur til mín þá ertu að taka allt upp í 150 skot á einni æfingu. ,“ sagði Brynjar.

„Ég er líka að skjóta sjálfur með og taka aukaæfingu. Ég tók pabba gamla á æfingu um daginn og það er alltaf gott að hafa hann með. Hann gefur mér góða punkta um hvað ég þarf að laga. Það hefur reynst mér mjög vel,“ sagði Brynjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×