Körfubolti

Brynjar: Það er meistarakarakter þarna undir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar urðu á dögunum deildarmeistarar í Domino´s deild karla í körfubolta fjórða árið í röð en þeir hafa þó ekki náð að sýna sitt besta í vetur og miklar sveiflur hafa verið í leik liðsins á þessu tímabili.

Guðjón Guðmundsson ræddi meðal annars við fyrirliðann Brynjar Þór Björnsson og þjálfarann Finn Frey Stefánsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

„Við eigum helling inni en að sama skapi erum við búnir vinna leiki sem hafa verið tæpir og komið til baka í mörgum leikjum þar sem við höfum verið undir. Það sýnir ákveðinn karakter í liðinu,“ sagði Brynjar Þór Björnsson.

„Það er meistarakarakter þarna undir og ég held að hann muni koma fram í úrslitakeppninni,“ sagði Brynjar Þór en KR hefur unnið þrjú undanfarin ár.

„Þetta verður alltaf erfiðara og þá sérstaklega að sækja í hvatninguna sem þarf til að vinna. Ná að búa til hungur í hópnum og hungur í liðnu. Það er það erfiðasta í þessu öllu að koma og vinna þetta fjórða árið í röð,“ sagði Brynjar Þór.

Það má sjá frétt Guðjóns í spilaranum hér fyrir ofan en þar ræðir hann meðal annars við Finn Frey Stefánsson, þjálfara og Benedikt Guðmundsson, þjálfara Þórsliðsins sem mætir einmitt deildarmeisturum KR í átta liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×