Körfubolti

Brynjar: Man ekki eftir að hafa mætt jafn öflugum íþróttamanni og Bonneau

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er pressa á Brynjari og félögum á heimavelli í kvöld.
Það er pressa á Brynjari og félögum á heimavelli í kvöld. fréttablaðið/stefán
„Nei, ég get ekki sagt að við séum að fara á taugum. Ég finn ekki fyrir neinu aukaálagi,“ segir Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR, yfirvegaður er Fréttablaðið heyrði í honum í gær.

KR tekur á móti Njarðvík í kvöld í oddaleik í undanúrslitum Domino's-deildar karla. KR vann fyrstu tvo leikina en Njarðvík hefur svarað fyrir sig og tók KR í bakaríið í síðasta leik.

„Það hefur gerst áður að lið detti niður á milli leikja og Njarðvík hitti á frábæran leik síðast á meðan við fundum okkur ekki. Njarðvík er líka með frábæran heimavöll. Við höfum verið of hægir og einfaldir í varnarleiknum í síðustu leikjum. Við vitum vel hvað þarf að laga og ef það tekst þá er ég bjartsýnn á að við klárum dæmið.“

Brynjar segir að KR hafi alltaf vitað að það væri ekkert hægt að labba í gegnum Njarðvíkurliðið.

„Þetta er hörkulið og stemning í kringum liðið. Svo er liðið með listamann í Stefan Bonneau. Ég man ekki eftir að hafa spilað gegn svona öflugum íþróttamanni. Hann er með sprengikraft og getur eiginlega allt. Það er magnað að fylgjast með honum.“

Fyrirliðinn segir að það hafi eðlilega haft áhrif á KR að Pavel Ermolinskij hafi ekki getað beitt sér eðlilega í þessum leikjum.

„Taktu Stefan úr Njarðvík og Darrel Lewis úr Stólunum. Þá veikjast liðin mikið og það er sama hjá okkur. Það riðlast allt hjá okkur og brenglast hlutverkaskipan sem er búin að þróast í allan vetur. Ég er stoltur af liðinu og hvernig það hefur brugðist við. Við kláruðum Grindavík sannfærandi og erum komnir í fimmta leik gegn flottu liði Njarðvíkur þó svo að Pavel sé ekki í sínu eðlilega hlutverki,“ segir Brynjar Þór sem elskar að spila leiki þar sem allt er undir.

„Það er pressa og bara titill eða „böst“ hjá okkur. Ég vil komast í úrslit og pressan lætur mann spila betur. Mér finnst langskemmtilegast að spila þessa leiki. Þetta er rjóminn sem maður er að leita að.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×