Innlent

Bryndís gefur kost á sér í 4. sæti

Atli Ísleifsson skrifar
Bryndís Haraldsdóttir er bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.
Bryndís Haraldsdóttir er bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.
Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi sem fram fer 10. september næstkomandi vegna fyrirhugaðra þingkosninga í haust.

Bryndís er formaður bæjarráðs og skipulagsnefndar Mosfellsbæjar og hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Mosfellsbæ og Sjálfstæðisflokkinn.

Í tilkynningu frá Bryndísi segir að hún sitji í stjórn Strætó bs og sé fyrrum stjórnarformaður í Strætó bs. 

„Hún situr í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og skólanefnd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ.

Bryndís hefur starfað sem bæjarfulltrúi frá árinu 2010, áður var hún varabæjarfulltrúi og varaþingmaður á árunum 2003-2009.

Bryndís er viðskiptafræðingur að mennt og jafnframt menntuð í stjórnsýslufræðum.

Bryndís er gift Örnólfi Örnólfssyni rafvirkjameistara og eiga þau þrjú börn.

Bryndís hefur verið í eigin atvinnurekstri og starfaði lengi að nýsköpunar og frumkvöðlamálum hjá Impru Nýsköpunarmiðstöð.

Bryndís hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins allt frá því hún gekk til liðs við flokkinn árið 2002. Bryndís hefur meðal annars stýrt atvinnuveganefnd flokksins, setið í stjórn SUS og stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna, fulltrúaráði og kjördæmisráði,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×