Tónlist

Bryan Adams heldur tónleika á Íslandi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Bryan Adams kemur fram á tónleikum í Hörpu í sumar.
Bryan Adams kemur fram á tónleikum í Hörpu í sumar. Vísir/Getty
Kanadíska rokkgoðsögnin Bryan Adams heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 9. ágúst og flytur öll sín vinsælustu og bestu lög en hann hefur undanfarin ár verið að túra af og til einn með gítar ásamt píanóleikara á svokölluðum Bare Bones-túr. „Bare Bones-hljómleikarnir hafa verið að fá gríðarlega góða dóma, röddin er alveg frábær og Bryan Adams innilegur, fyndinn og skemmtilegur á sviðinu,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari.

Tónleikarnir eru því einstakt tækifæri til að fá að upplifa listamanninn í mikilli nálægð og jafnvel biðja hann um óskalag. „Hann er mikið að tala við áhorfendur á milli laga, hann segir sögur af lögunum og svoleiðis. Ég hef heyrt að þegar hann er í stuði þá kalli hann jafnvel eftir óskalögum úr sal,“ bætir Guðbjartur við.

Hann segist hafa verið í nokkur ár að reyna fá kanadísku goðsögnina til landsins. „Ég hef verið að vinna í því meðfram öðru að fá hann til landsins í nokkur ár. Þá sérstaklega með það í huga að fá hann í Eldborgarsal Hörpu. Mér finnst það vera frábær staður fyrir þetta konsept.“

Bryan Adams er geysivinsæll hér á landi, er möguleiki á aukatónleikum ef það uppselt verður á tónleikana? „Það er möguleiki á aukatónleikum en ég tek þó bara eina tónleika í einu,“ segir Guðbjartur.

Bryan Adams er einn vinsælasti tónlistarmaður sögunnar og hefur selt yfir 100 milljónir plata. Hann hefur unnið til tuga verðlauna á ferli sínum, þar á meðal 20 kanadískra Juno-verðlauna sem eru sambærileg Grammy-verðlaunum Bandaríkjamanna. Hann hefur 15 sinnum verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið þau nokkrum sinnum. Fimm sinnum verið tilnefndur til Golden Globe-verðlauna og þrisvar til Óskarsverðlauna fyrir lög í kvikmyndum.

„Bryan Adams er sá kanadíski tónlistarmaður sem hefur selt langflestar plötur. Justin Bieber, sem einnig er Kanadamaður, kemst ekki með tærnar þar sem Bryan Adams hefur hælana,“ segir Guðbjartur léttur í lundu.





Vinsælasti, kanadíski listamaðurinn

Bryan Adams er einn vinsælasti tónlistarmaður sögunnar og hefur selt yfir 100 milljónir plata.

Aðrir kanadískir listamenn komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana í plötusölu. Alanis Morissette hefur selt um 60 milljónir platna og kanadíski prinsinn Justin Bieber hefur selt um 15 milljónir platna.

Hans vinsælustu lög eru (Everything I do) I Do It For You, Heaven, Please Forgive Me, Here I Am, Summer of 69, Straight from the Heart, When you Love Someone, Run To You, Have You Ever Really Loved a Woman, All for Love og mörg fleiri.

Miðasala á tónleikana hefst á fimmtudag á miði.is og harpa.is.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×