Viðskipti innlent

Bruggar bjór í frítíma sínum

Sæunn Gísladóttir skrifar
Haukur Hannesson hefur unnið hjá AGR síðan árið 2001.
Haukur Hannesson hefur unnið hjá AGR síðan árið 2001. Vísir/Stefán
AGR og Reynd sameinuðu krafta sína í byrjun ágúst og var Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR, skipaður framkvæmdastjóri nýsameinaða fyrirtækisins. Haukur segir sameininguna leggjast mjög vel í sig. „Við höfum unnið í mörg ár mjög náið með Reynd, þannig að þetta fittar vel saman,“ segir hann. AGR-Reynd mun bjóða Dynamics NAV viðskiptalausnir samhliða vörustjórnunarlausnum AGR á innlendum og erlendum markaði. Sameinað félag verður með starfsemi í Bretlandi og Danmörku en öll þróun fer fram hérlendis. Meirihluti tekna fyrirtækisins kemur frá útlöndum. AGR hefur selt lausnir sínar til rúmlega 20 landa og þjónustar fyrirtækið meðal annars Le Creuset, BoConcept, og IKEA í Sádi-Arabíu.

Haukur er með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá AGR í tæp 15 ár. Hann byrjaði í vörustjórnunarráðgjöf árið 2001 og sinnti því starfi fyrstu árin. Hann tók svo við sem framkvæmdastjóri árið 2007.

Kona Hauks er Sigríður María Tómasdóttir og eiga þau tvö börn, Kára Tómas, 13 ára, og Sunnu, 9 ára. Haukur segist verja miklu af frítímanum í að sinna börnunum. „Svo er ég í Skagaskokkinu sem er hlaupahópur, þetta er gamall vinahópur sem hittist alltaf á laugardagsmorgnum og hleypur saman,“ segir Haukur. Fjölskyldan spilar mikið golf, mest hérlendis. „Áhugamál með fjölskyldunni er að koma öllum af stað í golfinu. Strákurinn er byrjaður í þessu þannig að stelpan er sú eina sem er eftir. Hún er kannski fullung í það ennþá,“ segir Haukur.

Bjórbruggun er einnig eitt af áhugamálum Hauks. Hann segist hafa verið með bjórdellu í eitt, tvö ár og brugga bjórinn alveg frá grunni. „Við erum einmitt að halda sameiningarpartí á fimmtudaginn þar sem við munum fá bjór sem ég bruggaði heima hjá mér,“ segir Haukur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×