Tíska og hönnun

Brúðir með bert á milli

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Magabolir hafa verið geysivinsælir síðustu mánuði enda er það víst þannig að allt fer í hringi í heimi tískunnar.

Nú hefur þessi tíska hins vegar smitast út í brúðarkjólatískuna eins og sást best þegar Reem Acra kynnti brúðarkjólalínu næsta hausts í New York fyrir stuttu.

Í línunni eru margir kjólar sem gefa brúðum kost á að láta glitta í beran magann á stóra daginn. Hvort margar brúðir kæra sig um það er svo önnur saga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×