Lífið

Brown grunaður um enn eina líkamsárásina

Atli Ísleifsson skrifar
Chris Brown og Pitbull.
Chris Brown og Pitbull. Vísir/AFP
Bandaríski tónlistarmaðurinn Chris Brown liggur nú undir grun um að hafa ráðist á annan mann á körfuboltavelli í Las Vegas fyrr í dag.

Í frétt TMZ segir að árásin hafi átt sér stað á körfuboltavelli í Palms Casino Resort í Las Vegas. Þar segir að hann hafi verið að spila körfubolta og slegið annan mann.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Brown kemur sér í vandræði en hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldisverk. Þannig var hann dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi árið 2009 fyrir að ráðast á Rihönnu, þáverandi kærustu sína. 

Ekki er langt síðan dómssátt náðist í öðru máli þar sem Brown átti einnig að hafa slegið til manns á körfuboltavelli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×