Innlent

Brotið á einstaklingum til að túlka hlutafélagalögin

„Niðurstaða dómsins er alveg skýr um það að ég er sýknaður af öllum ákæruliðum. Það er aðalatriðið varðandi það sem snýr að mér,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs um niðurstöðu héraðsdóms á fimmtudag.



Í fjórum ákæruliðum er Baugur talinn hafa brotið hlutafélagalög, en heimildir til refsingar í lögunum séu óskýrar. Jón Ásgeir er alfarið sýknaður. Jón Ásgeir segir sitt mat vera að þarna hafi verið um eðlileg viðskipti að ræða milli aðila. „Við mátum þetta á sínum tíma sem eðlileg viðskipti í þágu beggja aðila, enda hafa svona viðskipti verið stunduð víðar en hjá okkar fyrirtæki og endurskoðendur kvittað upp á slíkt, eins og þeir gerðu í okkar tilviki. Ég tel að Hæstiréttur muni líta þetta öðrum augum.“



Jón Ásgeir segir að frá sínum bæjardyrum séð sé stærsta málið að einstaklingur þurfi að sitja og bíða eftir niðurstöðu dóms þrisvar sinnum í sama máli í héraðsdómi. „Það stenst engan veginn mannréttindi að þannig sé hægt að koma fram við fólk. Það er svakalegt að hlusta á orð saksóknara um að atvinnulífið krefjist skýringa á hvernig þessi lög virka og hvort það standist að þau séu ekki nægjanlega skýr. Þarf nokkuð frekari vitna við: þrír dómarar hafa komist að þeirri niðurstöðu, sem getur ekki bent til annars en að lögin séu óskýr. Það er auðvitað alveg svakalegt að einstaklingar séu notaðir sem einhver tilraunadýr um túlkun laga. Þannig má þetta ekki virka.“



Jón Ásgeir segir að af sama meiði sé skattamál sem er í kerfinu. „Það mál snertir að miklu leyti sömu málaflokka og nú hafa gengið þrisvar til dóms. Þar þarf ég enn að svara fyrir sömu hluti. Ætli það eigi að fara í fjórða skiptið fyrir dóm með þessi atriði og þá í einhverjum skattabúningi. Það getur bara ekki staðist. Það hefur verið gengið allt of langt í þessu máli og það er án fordæma að gengið sé fram gegn einstaklingum af slíku offorsi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×