Bröndby vann toppslaginn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hjörtur Hermannsson í leik með Bröndby.
Hjörtur Hermannsson í leik með Bröndby. Vísir/getty
Bröndby hafði betur í uppgjöri toppliðanna í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld

Fyrir leikinn voru Bröndby og Midtjylland jöfn að stigum í efstu sætum toppriðilsins í úrslitakeppninni. Liðin mættust á heimavelli Midtjylland.

Heimamenn byrjuðu frábærlega með tveimur mörkum frá Gustav Wikheim á þriggja mínútna kafla, staðan orðin 2-0 eftir 17 mínútur.

Pólverjinn Kamil Wilczek var hins vegar fljótur að svara fyrir Bröndby og staðan 2-1 í hálfleik.

Wilczek var aftur á ferðinni á 80. mínútu þegar hann jafnaði leikinn og Anthony Jung tryggði Bröndby svo sigurinn fjórum mínútum síðar.

Hjörtur Hermannsson byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á 41. mínútu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira