Fótbolti

Bróðir Gunnhildar sat í fangelsi í tíu ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnhildur Yrsa í landsleik.
Gunnhildur Yrsa í landsleik. vísir/getty
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var í áhugaverðu viðtali í upphitunaþætti RÚV í kvöld fyrir EM.

Gunnhildur á sjö systkini og eitt þeirra, Tindur, sat í fangelsi í tíu ár vegna líkamsárásar og fíkniefnadóma.

„Þrátt fyrir að hann hafi farið í fangelsi er hann fyrirmyndin mín,“ segir Gunnhildur Yrsa um bróður sinn en þessi reynsla hafði eðlilega mikil áhrif á hana.

„Fólk var náttúrulega mikið að tala um þetta. En þetta hvatti mig til að einbeita mér bara að fótboltanum og mínu. Njóta þess að gera það sem þú ert góður í. Tindur fór inn 18 ára og missir tíu ár úr lífi sínu og þá hugsaði ég: Þetta er ekki það sem ég vil. Þetta þjappaði fjölskyldu okkar betur saman. Það var talað um þetta.

„Við vorum ekki lokuð með hans mál. Þrátt fyrir að það hafi ekki verið gaman fyrir bróður minn að sitja inni í tíu ár þá lærði hann mikið af þessu og er allt annar maður í dag en hann var þegar hann fór inn.“

Sjá má viðtalið við Gunnhildi Yrsu á vef RÚV hér.


Tengdar fréttir

Tindur Jónsson: „Ég sé eftir þessu núna“

Aðalmeðferð fór fram vegna meintrar amfetamínverksmiðju sem fannst í Hafnarfirði í október á síðasta ári. Tindur Jónsson hefur verið ákærður auk Jónasar Inga Ragnarssonar fyrir að hafa ætlað að framleiða amfetamín og selja það. Jónas Ingi er einnig ákærður fyrir vörslu á fíkniefnum.

Verkefni Jónasar og Tinds notað í frumkvöðlakeppni

Efnafræðineminn Tindur Jónsson, annar þeirra sem ákærður er í amfetamínverksmiðjumálinu í Hafnarfirði, fór upphaflega að vinna fyrir hinn sakborninginn, Jónas Inga Ragnarsson, með það í huga að aðstoða hann við að framleiða eldvarnarefni. Honum þótti verkefnið svo vænlegt til árangurs að hann tók þátt í frumkvöðlakeppni hjá fyrirtækinu Innovit út á það. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð verjanda Tinds, sem lögð var fram í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni.

Tindur Jónsson með greiningu á einhverfurófi

Það er gerólíkt að ala upp barn á einhverfurófi sem fengið hefur greiningu og barn á rófinu sem ekki hefur verið greint. Þetta segir Ýr Sigurðardóttir, sem gerðist nýlega yfirlækniir á flogaveikideild við fyrsta nýja barnaspítalann sem opnað hefur í Bandaríkjunum í 50 ár. Ýr er í forsíðuviðtali við Nýtt líf sem kemur út í dag.

Jónas Ingi og Tindur fengu þunga dóma

Jónas Ingi Ragnarsson var dæmdur í tíu ára fangelsi og Tindur Jónsson í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir aðild sína að fíkniefnaverksmiðju sem var upprætt í Hafnarfirði í fyrra sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×