Brjóstumkennanlegt

Fréttablaðið Fastir pennar 14. febrúar 2012 06:00
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson skrifar:
Það virðist engan enda ætla að taka sú kvöl sem brjóstapúðar af PIP gerð hafa valdið konum um víða veröld. Nú berast fregnir af því að fleiri tegundir brjóstapúða hafi verið með sama innihaldi en seldir undir öðru vörumerki. Hingað til hafa nöfnin TiBREEZE og Rofil-M verið nefnd til viðbótar og Þjóðverjar hafa gefið leiðbeiningar um að allar fyllingar af þessum gerðum skuli einnig fjarlægðar með sama fyrirkomulagi og PIP brjóstapúðarnir. Óljóst er hvort slíkir púðar voru notaðir hér.

Í skýrslu Vísindasiðanefndar Evrópusambandsins sem kom út 1. febrúar síðastliðinn og landlæknir byggir leiðbeiningar sínar á um fjarlægingu brjóstapúða af PIP gerð, er ekki minnst á aðrar tegundir hvað þá heldur tekin afstaða til viðvörunar FDA (Food and Drug Administration) í Bandaríkjunum frá síðastliðnu ári um möguleg tengsl við krabbamein af ALCL (Anaplastic large cell lymphoma) toga og brjóstafyllinga almennt.

Líkurnar eru vissulega taldar afar litlar og jafnvel óljóst hvort tengsl eru þar á milli en engu að síður sá FDA sig knúna til að gefa út opinbera viðvörun og almennar ráðleggingar til sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna þessa efnis. Þessi viðvörun hefur ekki verið dregin til baka. Það er þó tekið sérstaklega fram í ofangreindri skýrslu að engin þekkt hætta sé á krabbameini af völdum brjóstapúða. Hér er misræmi á ferð.

Nú virðist augljóst að upplýsingaflæði til kvenna, ef marka má fréttaflutning, hefur verið í það minnsta ruglingslegt og hefur umræðan snúist fyrst og fremst um lögsóknir, skaðabótaábyrgð, skattaundanskot og mannorðsmeiðingar. Meira að segja hefur Læknafélag Íslands séð sig knúið til að standa upp og verja mannorð læknastéttarinnar í heild sinni gagnvart því sem talin eru ærumeiðandi ummæli aðstoðarskattrannsóknarstjóra í fjölmiðlum um skattamál lækna almennt.

Þetta er auðvitað ekki til eftirbreytni og er synd ef þetta mál kastar rýrð á heila stétt fagfólks. Ég tel augljóst að yfirvöld og lýtalæknar eru að reyna sitt allra besta í því að eiga við þennan vanda og miðla upplýsingum eins og þau geta, en betur má ef duga skal.

Það sem mér finnst þó einna áhugaverðast er að í umræðunni kemur fram að flestar almennar brjóstafyllingar leka með tímanum. Samkvæmt vísindasiðanefndinni hafa verið gerðar býsna margar rannsóknir og er mismunandi tíðni eftir því hverrar kynslóðar fyllingarnar eru, þær elstu leka mest virðist vera, eða allt að 69 prósent. Þá þykir mér áhugavert að eina landið í heiminum sem er með skýrar reglur um eftirlit með brjóstapúðum eru Bandaríkin, en þar er ráðlagt að fara í segulómun þremur árum eftir innsetningu púða og á 2ja ára fresti eftir það. Almennar ráðleggingar þar um fjarlægingu púða miðast við einkenni sjúklings og kosmetískar ástæður eins og útlit og aflögun.

Í nýlegum tölum landlæknis um tíðni rofs á PIP púðum kemur fram að 68% eru rofin samkvæmt ómskoðun sem er ekki nákvæmasta rannsóknin, heldur segulómun. Má því gera því skóna að tíðni rofs sé jafnvel enn hærri ef miðað er við næmni rannsóknaraðferðar.

Af þessu öllu má ráða að það eru mismunandi leikreglur varðandi þessa tegund fegrunaraðgerða og sérfræðingar eru ekki sammála um áhættu, eftirlit og langtímavanda kvenna sem eru með brjóstafyllingar. Þá kemur aukinheldur fram að það vantar frekari rannsóknir til að staðfesta eða hrekja skaðsemi þeirra, þó hún sé að öllum líkindum lítil.

Eftir stendur að í öllum tilvikum er verið að setja aðskotahlut inn í líkama kvenna sem felur í sér margvíslega áhættu auk svæfingarinnar sjálfrar. Landlæknisembættið og Félag lýtalækna gáfu út bækling um brjóstastækkanir árið 2002 og er ágætur en það er mikilvægt að upplýsingar séu réttar og eins nákvæmar og kostur er. Ég vænti þess að þessi bæklingur auk annars efnis verði endurnýjaður og uppfærður miðað við nýjustu þekkingu í dag auk þess sem lýtalæknar og heilbrigðisyfirvöld komi sér saman um vinnuferla varðandi eftirlit, íhlutun og kostnaðarþáttöku til frambúðar.

Mikilvægt er að hafa í huga að konur hafa ýmsar ástæður fyrir því að fá fyllingar í brjóst sín og skal ekki gera lítið úr því eða tengja eingöngu við hégóma og útlitsdýrkun eins og umræðan hefur verið brjóstumkennanleg upp á síðkastið. Konurnar hafa þó ríka skyldu til að vera meðvitaðar um hætturnar af slíkri aðgerð og þá staðreynd að þær þurfi líklega að undirgangast fleiri en eina, á eigin kostnað, til að viðhalda barmi sínum burtséð frá PIP púðum eða öðrum fyllingum.

Þegar hins vegar hætta steðjar að heilsu kvenna vegna svikinnar vöru sem alþekkt er þá bregst íslenska heilbrigðiskerfið við með réttu á sama hátt og við gerum ekki greinarmun á þeim sem reykir og skapar sér sjúkdóm, eða þess sem slasar sig t.a.m. undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Þess vegna er gott að búa á Íslandi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Brjóstumkennanlegt