Tónlist

Brjálæðisleg Bræðsla

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Magni Ásgeirsson, bræðslustjóri er miklu meira en spenntur fyrir hátíðinni.
Magni Ásgeirsson, bræðslustjóri er miklu meira en spenntur fyrir hátíðinni. Vísir/Stefán
„Þetta byrjaði á þriðjudagskvöldið og hefur verið geggjuð vika, svo hefur veðrið verið alveg frábært í allt sumar hér fyrir austan,“ segir Magni Ásgeirsson bræðslustjóri en tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram um helgina, þótt hátíðin hafi í raun hafist síðastliðinn þriðjudag.

„Formlega Bræðslukvöldið er á laugardagskvöld en það hafa verið tónleikar hérna öll kvöld síðan á þriðjudag. Áhöfnin á Húna kemur fram í kvöld en við getum samt eiginlega ekki kallað hljómsveitina Áhöfnina á Húna í kvöld,“ segir Magni.

Ástæðan fyrir því að Áhöfnin á Húna heitir Big band Fjarðarborgar er sú að Lára Rúnarsdóttir, söngkona og hljómborðsleikari sveitarinnar, þurfti að boða forföll vegna barnsburðar. „Hún er bara nýbúin að eiga lítinn strák en við höfum nú þegar bókað hana á Bræðsluna á næsta ári,“ segir Magni.

Pollapönkararnir kunna svo sannarlega að ná upp stuðinu hvar sem þeir koma fram.Vísir/Getty
Eiginmaður Láru, Arnar Þór Gíslason trommuleikari, mætir þó á svæðið en hann spilar þó stórt hlutverk á Bræðslunni. „Addi er að spila með Áhöfninni, nei ég meina Big bandinu, og svo er hann líka að spila með Pollapönki.“

Pollapönk kemur einnig fram á tónleikum á fótboltavellinum á laugardeginum.

„Pollarnir spila snemma á laugardag til að þreyta börnin, svo að foreldrarnir geti svæft þreytt ungviðið og mætt á Bræðsluna um kvöldið,“ segir Magni og hlær.

Á laugardagskvöldið koma fram Drangar, Emilíana Torrini, Mammút og SúEllen. „Það verður mikil stemning hérna enda varð uppselt á fjörutíu mínútum, ég get ekki beðið ég er svo spenntur,“ segir Magni sem er miklu meira en spenntur yfir Bræðslunni í ár.

Emilíana Torrini kemur fram á hátíðinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×