Fótbolti

Brjálæðingarnir á bak við tjöldin fá mikið lof frá fyrirliðanum

Tómas Þór Þórðarson í Volgograd skrifar
Aron Einar í nuddi sem er mikilvægt til að halda skrokknum gangandi.
Aron Einar í nuddi sem er mikilvægt til að halda skrokknum gangandi. vísir/vilhelm
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, er klár í slaginn fyrir stórleikinn á móti Nígeríu á HM 2018 annað kvöld sem fram fer í Volgograd.

Miðjumaðurinn öflugi var ekki búinn að spila fótboltaleik í sex vikur þegar kom að leiknum gegn Argentínu í fyrstu umferð riðlakeppninnar en hann spilaði 75 mínútur og stóð sig frábærlega.

Hann ætlaði aldrei að spila svona lengi og hefur áður viðurkennt að hann var alveg búinn á því þegar að hann skipti við Ara Frey Skúlason. Það tók sinn tíma að jafna sig en fyrirliðinn segist vera á góðum stað.

„Mér líður vel. Auðvitað tekur tíma að ná sér 100 prósent heilum, en það kom svona í gær. Þá fann ég að ég var orðinn 100 prósent aftur. Mér leið vel á æfingunni í dag og er búinn að safna þeirri orku sem að ég þurfti á að halda,“ segir Aron en hann svaraði spurningum á fréttamannafundi í Volgograd í dag.

Birkir Bjarnason spjallar við sjúkraþjálfarann Friðrik Ellert Jónsson sem er ein af hetjunum á bakvið tjöldin.vísir/Vilhelm
„Það tekur á að vera ekki búinn að spila fótboltaleik heillengi og taka bara nokkrar æfingar fyrir leik og spila svo 75 mínútur. Það væri vitleysa að ætlast til þess að finna ekki fyrir neinu,“ segir fyrirliðinn.

Íslenska liðið er ekki með flestu starfsmennina á mótinu en þeir kunna sitt fag og leggja mikið á sig eins og strákarnir okkar inn á vellinum. Aron Einar eys lofi yfir mennina sem að halda þeim gangandi á milli leikja.

„Strákarnir allir náðu sér fljótt. Ég vil hrósa sjúkrateyminu okkar sem að er búið að vinna eins og brjálæðingar. Þau eru áns gríns með okkur til tólf á nóttunni þegar þess þarf. Við erum búnir að vera á fullu að ná okkur til baka og mér sýnist bara að menn séu klárir fyrir morgundaginn,“ segir Aron Einar Gunnarsson.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.


Tengdar fréttir

Eitt orð til að lýsa íslenska liðinu: Lið

Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi íslenska liðsins fyrir leikinn gegn Nígeríu í Volgograd í dag. Þeir voru beðnir um að lýsa liðinu í einu orði og var það frekar einfalt svar.

Landsliðsfyrirliðinn kom ljósmyndara Fréttablaðsins til bjargar

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska fótboltlandsliðsins, er heimsþekktur fyrir það að stjórna Víkingaklappinu og stýra íslenska landsliðinu til afreka á stórmótum. Hann vakir hinsvegar yfir öllum Íslendingum í kringum sig eins og kom í ljós í dag.

Heimir hefur ekkert talað við Lars

Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur ekkert talað við Lars Lagerback, fyrrum þjálfara íslenska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×