Lífið

Britney sökuð um að „mæma“ í Carpool Karaoke

Atli Ísleifsson skrifar
Britney Spears hefur lengi verið sökuð um að mæma á tónleikum sínum.
Britney Spears hefur lengi verið sökuð um að mæma á tónleikum sínum.
Bandaríska söngkonan Britney Spears verður næsti gestur spjallþáttastjórnandans James Corden í liðnum vinsæla Carpool Karaoke.

Búið er að birta sýnishorn úr rúnti þeirra Spears og Corden og hafa netverjar strax sakað Britney um að „mæma“ lagið Toxic sem þau syngja saman.

Britney hefur lengi verið sökuð um að mæma á tónleikum sínum. Rúntur þeirra Britney og Corden verður sýndur í þætti Corden, The Late Late Show, annað kvöld.

„Britney verður fyrsta manneskjan til að mæma í karókí. Drottning,“ segir einn tístarinn.

Carpool Karaoke í þætti Corden nýtur mikilla vinsælda þar sem hann hefur fengið tónlistarmenn og fleiri til að syngja með lögum á meðan þau fara saman á rúntinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×