Lífið

Britney fór á kostum með James Corden

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hver hefur ekki sungið með Britney í bílnum?
Hver hefur ekki sungið með Britney í bílnum? Vísir/Skjáskot
Poppprinsessan sjálf, Britney Spears, er nýjasti gestur James Corden í hinu sívinsæla Carpool Karaoke. Í innslaginu fær Corden stærstu tónlistarmenn heims með sér á rúntinn og tekur með þeim sína stærstu slagara.

Britney og Corden rúntuðu um Los Angeles og ræddu um heima og geima, barneignir og BDSM.

Fyrr í vikunni birtist sýnishorn úr innslaginu og sýndist mörgum söngkonan vera að „mæma“ með laginu Toxic. Söngkonan hefur lengi verið sökuð um að mæma á tónleikum sínum. Nú verður fólk að horfa og dæma sjálft hvort að Britney sé í raun að syngja með. 

Innslagið má sjá í heild hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×