Glamour

Brie Larson mun leika fyrstu konuna sem bauð sig fram til forseta

Ritstjórn skrifar
Brie Larson er að geta sér gott nafn í kvikmyndaheiminum.
Brie Larson er að geta sér gott nafn í kvikmyndaheiminum. Mynd/Getty
Leikkonan Brie Larson mun leika femínísku hetjuna Victoria Woodhull í nýrri kvikmynd. Brie verður ein af framleiðendum myndarinnar sem verður gefin út á Amazon. 

Woodhull var fyrsta konan til þess að bjóða sig fram til forseta í Bandaríkjunum árið 1872. Það var 50 árum áður en konur máttu kjósa þar í landi. Victoria hefur ávallt verið álitin femínísk hetja en hún var partur af súffregettunum sem börðust fyrir auknum réttindum kvenna. 

Victoria Woodhull.Mynd/Getty





×