Golf

Brian Harman sigraði á John Deere Classic

Harman fagnar sigrinum í gær af ástríðu.
Harman fagnar sigrinum í gær af ástríðu. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn Brian Harman sigraði á John Deere Classic sem kláraðist í gær en hann lék hringina fjóra á TPC Deere Run vellinum á samtals 22 höggum undir pari.

Sigur Harman er hans fyrsti á PGA-mótaröðinni en hann var á sínum yngri árum ein skærasta stjarnan í háskólagolfinu í Bandaríkjunum.

Í öðru sæti, einu höggi á eftir Harman, kom Zach Johnson en hann sigraði mótið árið 2012 og virðist alltaf leika vel á hinum stutta TPC Deere Run vell.

Jerry Kelly og Jhonattan Vegas deildu þriðja sætinu á 19 höggum undir pari en Jordan Spieth sem átti titil að verja um helgina endaði jafn í sjöunda sæti á samtals 16 höggum undir pari.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er sjálft Opna breska meistaramótið sem fram fer á Royal Liverpool vellinum en sýnt verður frá öllum dögum mótsins í beinni útsendingu á Golfstöðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×