Innlent

Breytingar á siðareglum ráðherra samþykktar

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar setti sér nýjar siðareglur í morgun.
Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar setti sér nýjar siðareglur í morgun. Vísir/Anton Brink
Í morgun samþykkti ríkisstjórnin nýja útgáfu af siðareglum ráðherra í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands.Síðast voru siðareglur settar árið 2011 og eru nýju reglurnar unnar upp úr þeim með ákveðnum breytingum, sérstaklega hvað varðar hagsmunaárekstra.

Stærstu breytingarnar eru á þeim hluta sem voru fyrsti og annar liður 2.greinar siðareglnanna frá 2011. Fjarlægður hefur verið sá hluti sem stóð að „ráðherra leggi sig fram við að tryggja að faglega sé staðið að skipun embættismanna“.

Efnislega er fyrsti liður 2.greinar svipaður og árið 2011 en orðalagi hefur verið breytt. Í siðareglum 2011 stóð; „Ráðherra forðast hagsmunaárekstra og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín.“

Í siðareglunum sem samþykktar voru í morgun stendur; „Ráðherra forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.“

Samkvæmt nýju siðareglunum getur forsætisráðherra í samráði við ríkisstjórn nú ákveðið að kalla með skipulögðum hætti eftir frekari upplýsingum um hagsmunatengsl ráðherra sem birtar verði almenningi.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fagnaði því að ráðherrum hefðu nú verið settar siðareglur með formlegum hætti að loknu fundi ríkisstjórnar í morgun. Hann segir að breytingarnar hafi verið nauðsynlegar í ljósi lagabreytinga og að ekki hafi þótt ástæða til þess að endurskoða siðareglurnar frá 2011 frá grunni.

Siðareglur ráðherra sem samþykktar voru í morgun má lesa í heild sinni í skjali sem fylgir fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×