Innlent

Breytingar á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum: Bryndís í annað sætið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Breytingin var samþykkt á fundi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í kvöld.
Breytingin var samþykkt á fundi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í kvöld. Vísir/Friðrik Þór
Sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi samþykktu á fundi sínum í kvöld breytingar á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi kosningar. Bryndís Haraldsdóttir kemur inn í annað sæti listans og Jón Gunnarsson, Ólafur Björn Kárason og Vilhjálmur Bjarnason færast niður um eitt sæti.

Bjarni Benediktsson, formaður flokksins og fjármálaráðherra leiðir listann. Niðurstaða prófkjörsins í kjördæminu sem haldið var 10. september síðastliðinn var umdeild en efstu sæti listans skipuðu eingöngu karlmenn.

Jón Gunnarsson þingmaður, sem nú skipar þriðja sæti listans, vildi lítið tjá sig um málið við fréttastofu. Hann sagðist sáttur við að vera kominn niður um sæti og mikil samstaða hafi náðst um nýjan lista.

Vilhjálmur Bjarnason á fundinum í kvöld.Vísir/Eyþór
Vilhjálmur Bjarnason þingmaður vildi einnig lítið tjá sig um málið við fréttastofu. Hann sagðist þó hafa samþykkt listann en væri enn á þeirri skoðun sem hann lýsti eftir niðurstöður prófkjörsins að það væri undarlegt að halda prófkjör ef breyta ætti leikreglunum eftir á.

Niðurstaða prófkjörsins var umdeild og lýstu Sjálfstæðiskonur yfir óánægju sinni með að karlar skyldu skipa efstu sæti listans. Sagði Bjarni, formaður flokksins, í kjölfarið að til greina kæmi að breyta listanum. Kallað var eftir breytingum en þrír síðustu formenn Landssambands Sjálfstæðiskvenna sig úr Sjálfstæðisflokknum vegna óánægju með slakan árangur kvenna í prófkjörum flokksins. 

Efstu sex sæti listans skipa nú eftirfarandi

Bjarni Benediktsson

Bryndís Haraldsdóttir

Jón Gunnarsson

Óli Björn Kárason

Vilhjálmur Bjarnason

Karen Elísabet Halldórsdóttir


Tengdar fréttir

Sjálfstæðiskonur guldu afhroð

Úrslit prófkjara Sjálfstæðisflokksins verða ræddar á fundi í dag. Formaður flokksins útilokar ekki að niðurstöðum verði breytt. Iðnaðaráðherra hættir í stjórnmálum. Þingkonur í Samfylkingu hverfa af Alþingi.

Skiptar skoðanir um íhaldssemi flokksins

Ritari Sjálfstæðisflokksins telur ekki fót fyrir gagnrýni nokkurra stjórnarkvenna í Landssambandi sjálfstæðiskvenna sem sögðu sig úr flokknum vegna íhaldssemi hans í jafnréttismálum. Tvær þingkonur segja eitthvað til í gagnrýninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×