Erlent

Breytingar á Barbie: Foreldrar lengi kvartað undan einsleitninni

Birta Björnsdóttir skrifar
Fyrir helgi komu á markað þrjár nýjar tegundir af Barbie, ein sem er smávaxin, önnur hávaxin og sú þriðja þéttvaxnari en forveri hennar.
Fyrir helgi komu á markað þrjár nýjar tegundir af Barbie, ein sem er smávaxin, önnur hávaxin og sú þriðja þéttvaxnari en forveri hennar. Mynd/Mattel
Í vikunni var ráðist í umfangsmestu breytingar sem orðið hafa á högum hinnar 57 ára gömlu Barbie. Breytingarnar eru tilkomnar vegna gagnrýni á einsleitni dúkkunnar auk þess sem Barbie selst ekki sem fyrr.

Vinsælasta dúkka allra tíma hefur lengi legið undir ámæli fyrir að vera óheilbrigð fyrirmynd varðandi líkamsvitund. En nú skal verða breyting þar á.

Tónninn var sleginn í fyrra þegar Barbie fékkst í fyrsta skipti í sjö mismunandi húðlitum, með 22 ólíka liti á augum auk þess sem 24 mismunandi hárgerðir eru nú í boði á dúkkunum.

Fyrir helgi komu svo á markað þrjár nýjar tegundir af Barbie, ein sem er smávaxin, önnur hávaxin og sú þriðja þéttvaxnari en forveri hennar.

Sala á Barbie-dúkkum hefur dregist umtalsvert saman undanfarin ár og dúkkan farið halloka í samkeppni við önnur leikföng. Ekki er ólíklegt að sú staðreynd ráði miklu um þessa nýjung framleiðandans, Mattel.

Þetta eru mestu breytingar sem orðið hafa á högum hinnar 57 ára gömlu Barbie og þykir mörgum löngu kominn tími til.

„Foreldrar hafa lengi kvartað undan einsleitninni og vilja leikföng sem endurspegla raunveruleikann," segir Jim Silver, eigandi leikfangaverslunar í Bandaríkjunum.

Enn er óvíst hvort fyrir Ken liggi viðlíka breytingar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×