Innlent

Breyta litakóða fyrir eldstöðina Eldey aftur í grænt

Birgir Olgeirsson skrifar
Eldey
Eldey Vísir
Í ljósi þess að skjálftahrinunni sem hófst á Reykjaneshrygg að kvöldi 30 júní er að mestu lokið, hefur Veðurstofan Íslands ákveðið að breyta litakóða fyrir eldstöðina Eldey aftur í grænt. 

Frekari greining á hrinunni sýnir engin mælanleg merki þess að skjálftavirknin sé  tengd kvikuhreyfingum í efri hluta jarðskorpunnar. Greining á sýnum sem tekin voru úr sjó þann 1. júlí sýna heldur engin frávik sem benda til þess að kvika hafi komist í snertingu við vatn.

Skjálftahrinur eru mjög algengar á þessum slóðum, þó var stærð skjálfta og fjöldi þeirra í hærri kantinum í þessari hrinu. Svæðið verður vaktað náið á næstunni, en búast má við eftirskjálftavirkni á næstu dögum og vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×