Tíska og hönnun

Breyta listasafninu í pop-up-borg

adda soffía ingvarsdóttir skrifar
Ásgeir Guðmundsson.
Ásgeir Guðmundsson.
„Stefnan er að breyta listasafninu í einhvers konar abstrakt pop-up-borg og halda þar gott götupartí,“ segir Ásgeir Guðmundsson, verkefnastjóri tónlistar hjá Kraumi og einn skipuleggjenda.

Verkefnið er samstarf milli Kraums tónlistarsjóðs, Auroru hönnunarsjóðs og HönnunarMars. „Götupartíið hefst klukkan níu laugardaginn 14. mars og þar verða kaffibarir og ísbarir og nokkrir veitingastaðir ætla að bjóða upp á street-food-útgáfu af matseðlinum sínum. Og eins og góðu götupartíi sæmir verða að sjálfsögðu götulistamenn á svæðinu,“ segir Ásgeir hress. Meðal þeirra sem koma fram eru Snorri Helgason, Ylja og Retro Stefson.

Hópurinn 2,5x5 mun síðan byggja hús yfir sviðið. „Þetta er gert í samstarfi við nýtt verkefni innan Auroru sem heitir Hæg breytileg átt og snýr að byggða- og íbúaþróun. Þessi skúlptúr á sviðinu gefur þá þennan borgarfíling,“ segir hann. Allur ágóði af veitingasölu kvöldsins rennur í nýjan sjóð sem Kraum og Aurora hafa stofnað. „Sá sjóður er ætlaður til þess að finna sameiginlega fleti á tónlist og hönnun, til dæmis með hönnun á plötuumslögum og fleira,“ segir Ásgeir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×