Viðskipti erlent

Bretar myndu bregðast við með lækkun skatta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hammond segir efnahagslífið breytast ef innri markaðurinn lokast.
Hammond segir efnahagslífið breytast ef innri markaðurinn lokast. vísir/epa
Bretar myndu líða fyrir það ef þeir fengju engan aðgang að mörkuðum Evrópusambandsins eftir útgöngu úr sambandinu og myndu ekki taka því þegjandi. Þetta segir Philip Hammond, fjármálaráðherra Breta.

Hammond viðurkenndi í samtali við þýskt tímarit að ef þetta yrði að veruleika myndi breskt efnahagslíf skaðast, að minnsta kosti til skamms tíma.

Hann segir hins vegar að Bretar gætu lækkað skatta til þess að hvetja fyrirtæki til að flytja starfsemi sína til Bretlands ef Evrópusambandið myndi útiloka Breta frá viðskiptum.

Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, brást við þessum ummælum með því að gefa í skyn að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, væri að undirbúa viðskiptastríð við Evrópusambandið ef hún hefði ekki sitt fram í samningum um útgöngu Breta úr sambandinu.

Í viðtali við blaðið Welt am Sonntag sagði Hammond að ríkisstjórnin myndi gera það sem gera þyrfti til þess að tryggja að Bretar væru samkeppnishæfir ef þeir yrðu útilokaðir frá innri markaðnum eftir Brexit.

„Við yrðum þá kannski neyddir til þess að breyta efnahagslíkani okkar og við myndum þá breyta því þannig að við myndum halda samkeppnishæfni okkar,“ sagði Hammond.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×