Erlent

Bretar munu ekki ræða Brexit á þessu ári

Samúel Karl Ólason skrifar
Angela Merkel og Theresa May í dag.
Angela Merkel og Theresa May í dag. Vísir/AFP
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að viðræður á milli Bretlands og Evrópusambandsins um útgöngu Breta muni ekki hefjast á þessu ári. Þetta sagði hún á fundi með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem tók vel undir það og sagði mikilvægt að Bretar komi að samningaborðinu með skýra og skilgreinda samningsstöðu.

Þær May og Merkel funduðu í dag í fyrstu heimsókn May sem forsætisráðherra út fyrir landsteina Bretlands.

May hefur ítrekað beðið um þolinmæði heima fyrir og hún hefur sagt að Brexit þýði Brexit. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði virt.

Samkvæmt AFP fréttaveitunni verða erfiðustu samningaatriðin frjálst flæði fólks til vinnu. Merkel hefur áður varað við því að Bretar muni ekki halda aðgangi sínum að mörkuðum ESB án frelsis fólks til að búa og vinna í Bretlandi. Málefni innflytjenda var eitt helsta deilumál þjóðaratkvæðagreiðslunnar í júní.


Tengdar fréttir

Þúsundir Breta vilja evrópsk vegabréf

Þúsundir Breta flykkjast nú að evrópskum sendiráðum til að kanna möguleikann á að fá evrópskt vegabréf í kjölfar þess að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið.

Augu allra á Merkel eftir Brexit

Leiðtogi Sósíal demókrata í Þýskalandi og forseti Evrópuþingsins kynntu eftir Brexit kosninguna skjal með 10 efnisatriðum um endurbyggingu Evrópu.

Telur Breta hafa skotið sig í fótinn með útgöngunni

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) lækkaði í gær hagvaxtarspá Bretlands fyrir næsta ár. Ástæðan er sú að AGS telur Breta hafa skotið sig í fótinn með því að ákveða að hverfa á brott úr Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×