Tíska og hönnun

Breska Vogue hafði samband

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Heiðrún Ósk er forstjóri Dimmblá
Heiðrún Ósk er forstjóri Dimmblá Vísir/GVA
Breska útgáfa tímaritsins Vogue hafði á dögunum samband við íslenska tískumerkið Dimmblá til þess að fá að birta umfjöllun um vörurnar þeirra.

Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, forstjóri Dimmblár, segir þetta mikið hrós fyrir merkið. „Ég veit ekki hvernig þeir uppgötvuðu okkur en þeir eru greinilega að fylgjast vel með og leist svona vel á línuna okkar. Þeir sendu okkur tölvupóst og settu saman prófíl sem við samþykktum auðvitað. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur.“

Blaðið kemur út 9. júlí en það mun vera ágústhefti Vogue. Hingað til hefur Dimmblá aðeins verið fáanlegt á Íslandi en breytingar á því eru á döfinni.

„Við erum á leiðinni til Berlínar í næstu viku þar sem við munum heimsækja eina stærstu sölusýningu þar í landi og hitta hugsanlega dreifingaraðila. Við höfum fundið fyrir áhuga í Þýskalandi svo að fyrsta rökrétta skrefið í sölu erlendis er að byrja þar. Við fengum umfjöllun í fyrra í stóru þýsku dagblaði og svo hafði samband við okkur þýsk sjónvarps- og útvarpsstöð sem vildi taka viðtal við okkur. Okkar sýn um náttúrulega og umhverfisvæna hönnun passar líka vel inn á þýska markaðinn.“

Mikill uppgangur hefur verið á rekstri Dimmblár undanfarið og eru slæðurnar þeirra uppseldar.

„Við erum að vinna á fullu í að fá fleiri slæður. Vörurnar eru framleiddar á Indlandi og þær eru allar umhverfisvottaðar. Okkur finnst það skipta miklu málið fyrir vörumerkið,“ segir Heiðrún.

Yfirhönnuður Dimmblár er Una Hlín Kristjánsdóttir og er áhersla lögð á að nota ljósmyndir af náttúrunni.

 

Hægt er að skoða vefverslun Dimmblá hér.


Tengdar fréttir

Dimmblá á rauða dreglinum

Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir sendi frá sér sína fyrstu fatalínu rétt fyrir jól. Ný lína er þegar á teikniborðinu og klæddist Ilmur Kristjánsdóttir leikkona kjól úr þeirri línu á rauða dreglinum á Eddunni.

Hannar flíkur í samstarfi við landslagsljósmyndara

"Mig hefur lengi dreymt um að reka mitt eigið fyrirtæki. Þegar ég var í fæðingarorlofi fór ég alvarlega að hugsa um að kominn væri tími til að breyta til og gera eitthvað nýtt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×