Innlent

Brenndist þegar kviknaði í skreytingu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Eldur kviknaði í húsi í Hafnarfirði um klukkan eitt í nótt en kviknað hafði í skreytingu á kertastjaka. Stjakinn féll ofan á púða í sófa sem húsmóðirin lá í sofandi og fékk hún brunasár á báðar hendur, vinstri fótlegg og aðeins í hársverði við hægra eyra.

Hún slökkti sjálf eldinn en að því loknu fór hún ofan í baðkar og kældi brunasárin þar til björgunarlið kom á vettvang. Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×