Erlent

Breivik sýndi enga iðrun fyrir áfrýjunardómstól

Heimir Már Pétursson skrifar
Anders Behring Breivik sem myrti sjötíu og sjö manns í Osló og Útey árið 2011 sýndi enga iðrun fyrir norskum dómstól í dag þar sem kvartanir hans vegna aðbúnaðar í fangelsinu voru teknar fyrir. Hann viðurkennir að umkvartanir hans hafi verið settar fram til að fá vettvang til að koma róttækum þjóðernisskoðunum sínum á framfæri.

Anders Behring Breivik sprengdi bíl við norsku stjórnarráðsbygginguna hinn 22. júlí árið 2011 þar sem átta manns létust og mikill fjöldi særðist.

Eftir það hélt hann út í Útey, litla eyju í eigu norska Jafnaðarmannaflokksins, þar sem hann skaut 69 manns til bana. Flestir þeirra sem hann myrti í eynni voru mjög ungir að árum enda stóð þar yfir samkoma ungra jafnaðarmanna.

Breivik kom fyrir áfrýjunardómstól í Osló í gær og var réttarhöldum framhaldið í dag. En ákæruvaldið áfrýjaði úrskurði lægra dómstigs frá því árið 2015 sem komst að þeirri niðurstöðu að einangrun Breiviks frá öðrum föngum í fangelsi bryti gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu og væri ómannleg og niðurlægjandi.

Oeystein Storrvik lögmaður Breivik segir alla sem tengist málinu með einhverjum hætti séu snortnir af því.

„Þannig að þetta er alvarleg staða sem gæti hafa leitt til þess að skilyrðin varðandi fangelsun hans séu of ströng. Þetta er áríðandi hluti af málinu og nú hefur Breivik í fyrsta sinn í langan tíma fengið tækifæri til að koma kvörtunum sínum á framfæri,“ segir Storrvik.

Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi með möguleika á framlengingu sem er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp í Noregi eftir stríð enda var um að ræða mestu fjöldamorð í sögu Norðurlandanna. Breivik hefur sagt lögmanni sínum að einangrunin hafi gert hann skrýtnari og róttækari í þjóðernis- og kynþáttamálum. En Fredrik Sejersted ríkissaksóknari segir hann snúa málum á haus og hann sé einungis að reyna að komast í samband við aðra hægriöfgamenn í fangelsinu.

„Við vorum búin undir að hann myndi hefja málsvörn sína með sama hætti og síðast. Með hugmyndafræðilegri ræðu. Þess í stað hóf hann mál sitt á því að taka undir þá skoðun mína að hann hefði herst í öfgaskoðunum sínum í fangelsinu. Síðan reyndi hann auðvitað að snúa orsakasamhenginu við og sagði einangrunina hafa gert hann róttækari. Þá erum við komin að kjarna málsins. Kjarni málsins er að hann sýndi enga yðrun vegna þess sem hann gerði,“ sagði Sejersted.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×