Erlent

Breivik heilsaði að hætti nasista þegar hann mætti fyrir rétt

Atli Ísleifsson skrifar
Hinn 37 ára Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi árið 2012.
Hinn 37 ára Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi árið 2012. Vísir/AFP
Norski fjöldamorðinginn og hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik heilsaði með nasistakveðju þegar hann mætti fyrir rétt í morgun.

Breivik hefur stefnt norska ríkinu fyrir mannréttindabrot með því að halda honum í einangrun og lýsir aðstæðum sínum í fangelsinu sem pyndingum. Segir hann að stjórnvöld hafi gerst brotleg við tvenn ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu.

Breivik drap 77 manns árið 2011 í sprengingu í miðborg Óslóar og með því að skjóta alla þá sem á vegi hans urðu í Útey þar sem sumarbúðir ungliðadeildar Verkamannaflokksins fóru fram.

Hinn 37 ára Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi árið 2012 þó að ólíklegt þykir að hann muni nokkurn tímann verða sleptpt.

Í frétt BBC segir að hann hafi mætt fyrir réttinn í dökkgráum jakkafötum skömmu fyrir klukkan níu að staðartíma, tekið í hönd lögmanns síns og heilsað að hætti nasista eftir að handjárnin voru fjarlægð.

Réttarhöldin eru haldin í íþróttasal Skien-fangelsisins, um hundrað kílómetrum suðvestur af Ósló. Búist er við að réttarhöldin standi fram á föstudag og að Breivik muni bera vitni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×