Erlent

Breitbart í stríði við Kelloggs

Samúel Karl Ólason skrifar
"Ef þú gefur fjölskyldu þinni vörur frá Kellog's að borða, ertu að bjóða upp á þröngsýni við morgunverðarborðið.“
"Ef þú gefur fjölskyldu þinni vörur frá Kellog's að borða, ertu að bjóða upp á þröngsýni við morgunverðarborðið.“
Hægri sinnaða fréttasíðan Breitbart hefur lýst yfir „stríði“ við fyrirtækið Kellog‘s. Fréttasíðan hefur verið sökuð um að dreifa hatursáróðri og rasisma en fyrirtækið hætti í byrjun vikunnar að auglýsa á síðunni og í tilkynningu sagði fyrirtækið í gær að boðskapur Breitbart væri ekki í „samræmi við gildi“ Kellog‘s.

Forsvarsmenn Breitbart lýstu því yfir að ákvörðun Kellogs væri liður í stríði gegn síðunni og stofnuðu til undirskriftasöfnunar þar sem fólk lýsir því yfir að það muni sniðganga vörur Kellog‘s. Í frétt sem birt var um ákvörðun Kellogs segir að fyrirtækið hafi lýst yfir hatri sínu á öllum lesendum Breitbart.



Þá hafa fjölmargar fréttir um fyrirtækið verið birtar á vefnum. Meðal þeirra frétta er að níðst hafi verið á svörtum starfsmanni Kellogs og að fyrirtækið hafi stutt Black Lives Matter hreyfinguna fjárhagslega.

Þá hafa þeir beitt #DumpKellogs á Twitter til að fá lesendur sína til að hætta að kaupa vörur fyrirtækisins og jafnvel til þess að henda þeim vörum sem þau eiga.

„Ef þú gefur fjölskyldu þinni vörur frá Kellog's að borða, ertu að bjóða upp á þröngsýni við morgunverðarborðið,“ stendur við undirskriftasöfnun Breitbart. Enn fremur saka þeir fyrirtækið um heigulshátt og að móðga starfsfólk sitt og lesendur.

Kellog's segir þó að ákvörðun fyrirtækisins hafi ekki verið byggð á stjórnmálaskoðunum. Hins vegar hefðu viðskiptavinir fyrirtækisins verið að kvarta yfir auglýsingum þeirra á Breitbart.

Margir hafa tekið kalli Breitbart vel og birt myndir af vörum frá Kellog's í ruslinu og hóta því að kaupa vörur þeirra aldrei aftur. Einnig hafa margir komið fyrirtækinu til aðstoðar og gert grín að uppátækinu.

Breitbart hefur notið mikillar athygli að undanförnu, en fyrrverandi ritstjóri miðilsins, Steve Bannon, er nú orðinn sérstakur ráðgjafi Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

Þingmenn Demókrata biðla til Trump

Þingmennirnir segja ráðningu Steve Bannon sem æðsta ráðgjafa Trump draga úr möguleika hans að sameina bandarísku þjóðina.

Vill ekkert við nýnasistana kannast

Donald Trump segist afneita "hinu hægrinu“, hreyfingu hægri þjóðernissinna sem fagnað hafa kjöri hans. Hins vegar segir hann ekkert athugavert við að hafa gert Steve Bannon að helsta ráðgjafa sínum. Svo heldur hann áfram að kvarta undan

Hægri hönd Trumps seldi gull í World of Warcraft

Steve Bannon, sem var framkvæmdastjóri forsetaframboðs Donalds Trump í Bandaríkjunum og hefur nú verið ráðinn sérlegur ráðgjafi forsetaefnisins, sat í stjórn fyrirtækis um miðjan síðasta áratug sem sérhæfði sig í að selja spilurum fjölspilunarleiksins World of War­craft gull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×