Innlent

Bregðast við varasömum plöntum

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Plönturnar eru varasamar en sjást víða Reykjavík.
Plönturnar eru varasamar en sjást víða Reykjavík. VÍSIR/PJETUR
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar ætlar að grípa til aðgerða vegna útbreiðslu trölla-, húna- og bjarnarklóa í Reykjavík.

Þetta eru plöntur af ættkvíslinni heracleum, en fundist hafa þrjár tegundir sem ganga undir ýmsum nöfnum. Þær eru varasamar því þær innihalda efnasambönd sem geta valdið alvarlegum bruna á húð.

Í sumar hefur verið unnið að því að kortleggja útbreiðslu platnanna en að því loknu verður unnin aðgerðaráætlun og útbúið fræðsluefni um hvernig best sé að bregðast við vandanum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×