Braut gegn 15 ára stúlku: „Þú ert lítil greddupadda“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. nóvember 2014 13:21 Maðurinn sagði að um grín hefði verið að ræða. vísir/getty
Karlmaður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands í síðustu viku dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára gamalli systurdóttur eiginkonu sinnar árið 2012. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Maðurinn var sakaður um að hafa brotið gegn barnaverndarlögum með því að hafa ítrekað áreitt stúlkuna með kynferðislegu orðbragði á tímabilinu 3. janúar til 16. október. Hann spurði hana meðal annars hvort hún væri í fötum, sagt að hún sé „svo hott“, hvort hún myndi vilja byrja með honum og að hún hefði skyldum að gegna sem kærasta hans. Einnig að hann myndi gera allt fyrir hana ef hún fötum, skipað henni að fara úr að ofan og neðan og spurt hana hvort hann mætti sjá rassinn.„Nudda þig í sturtunni“ Þá hafði hann ítrekað á orði við hana meðal annars með smáskilaboðum að ef hún færi úr að ofan þá fengi hún að aka bifreið hans, en maðurinn var leiðbeinandi hennar í æfingaakstri. Skilaboðin fóru ýmist fram í gegnum Facebook eða smáskilaboð en nokkur þeirra má sjá hér fyrir neðan:*„Ég skal kyssa þig á kinnina fyrir „rasskinnina“ og „Það gildir ekki þegar þú fórst úr að ofan og það leið yfir mig.“* Ég nudda þig þá bara í sturtunni.“* „Og ég er mjög glaður“, „graður átti þetta að vera.“*„Þú ert lítil greddupadda.“Leit á hann sem föður Í vottorði sálfræðings kom fram að vaxandi depurð og kvíði, minnkuð félagsleg virkni, sjálfskaðandi hegðun og sjálfsvígshugsanir stúlkunnar megi rekja til samskiptanna við manninn og veikt mótstöðu hennar gagnvart öðrum erfiðleikum. Þá kemur jafnframt fram að stúlkan hafi litið á hann sem föðurímynd en hann hafi verið meira til staðar en faðir hennar. Fram kemur í kærunni að stúlkan hafi í tvö til þrjú skipti heimsótt vinnustað mannsins og í eitt skiptið hafi hann boðist til að taka af henni myndir og hún samþykkt það. Undir lok myndatökunnar hafi hann farið að nudda á henni axlirnar og fætur. Henni hafi fundist það óþægilegt og degi síðar hafi hann leyft henni að keyra og þá beðið hana um að segja ekki frá nuddinu.Móðirin sagði henni að taka þessu ekki alvarlega Þá hafi stúlkan sagt móður sinni frá þessu sem sagði manninn oft láta svona. Systir stúlkunnar hafi einnig upplifað þetta og að þær tækju hann ekki alvarlega. Stúlkan var skömmu síðar lögð inn á barna- og unglingageðdeild Landspítalans og í kjölfarið í fóstur.Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands.vísir/ókáSagðist hafa verið að grínast Maðurinn var yfirheyrður hjá lögreglu í febrúar 2013 og kannaðist hann við að hafa átt samskipti við stúlkuna. Sagði hann að um hafi verið að ræða ákveðið samskiptamál þeirra á milli sem þróast hefði á rangan hátt. Hann hafi gert sér fulla grein fyrir því að hann hafi verið að biðja stúlkuna um hluti sem hann hefði ekki átt að gera. Kvað hann þessi samskipti ekki hafa verið af kynferðislegum toga og að hann hafi verið að grínast. Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn hafi verið 36 ára þegar brotin áttu sér stað. Fjölskyldutengslin geri brotin enn alvarlegri en ella þar sem stúlkunni hafi verið gert erfitt fyrir að útiloka hann úr lífi sínu. Ásetningur ákærða hafi verið mikill og einbeittur, brotin hafi verið framin á löngum tíma og hann hafi sýnt einbeittan vilja til að brjóta á stúlkunni. Manninum var gert að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur. Þá skal hann greiða allan sakar- og málsvarnarkostnað, rúmlega 1,3 milljónir króna og þóknun réttargæslumanns stúlkunnar, um 1,2 milljónir króna.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira